mánudagur, janúar 28, 2008
Gettið hvað ég sá til sölu í sælkerabúð á aðalverslunargötu Oslóborgar???
Freyju Draum, Freyju Rís og Freyju Hitt.
Er ekki frá því að þetta hafi kítlað þjóðarstolt okkar Kára :)
Þetta skrifaði
Eva
(5) Álit
fimmtudagur, desember 20, 2007
Komin heim!
já, þá er maður loksins kominn heim í heiðardalinn. Erum bæði komin með íslensku númerin okkar ef einhver vill ná á okkur...
Annars bið ég að heilsa og óska ykkur öllum gleðilegra jóla :)
Þetta skrifaði
Eva
(4) Álit
miðvikudagur, desember 12, 2007
Ætli jólasveinninn ferðist ekki til noregs að gefa í skóinn? Minn var nefnilega tómur í morgun :(
Annars vinn ég með konu sem er agalega áhugasöm um íslensku jólasveinana þar sem henni finnst þeir vera hreint út sagt æðislegir. En hún spurði mig um daginn hvenær þeir færu heim til sín aftur eftir að hafa verið í byggð. Hefur einhver hugmynd um það?
Hún sagðist nefnilega þekkja einn íslending hérna í noregi sem sagði að fyrsti jólasveinninn komi 11. des ár hvert og færi síðan heim 25. des. Síðan jólasveinn sem komi 12. des fari 26. des og svo koll af kolli þar til síðasti jólasveinninn fer heim á þrettándanum og þess vegna er nafnið á þrettándanum til komið.
Er þetta rétt?

Þetta skrifaði
Eva
(8) Álit
miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Það snjóaði í Osló í dag og mok-snjóaði í vinnunni minni. Snjókornin voru risastór og bara á augnabliki var allt orðið hvítt og ekkert smá jólalegt. Í vinnunni hlustuðum við á jólalög, vorum að föndra og kúsa okkur eins og norðmenn tala alltaf um og ég var bara að fíla mig í tætlur. Já, ég er ekki frá því að ég sé að komast í jólaskap, aldrei þessu vant. Í miðbænum er svo búið að hengja upp jólaljós sem eru ekkert smá flott og ég bara bíð eftir að kveikt sé á þeim. Freydís systir sendi mér svo jólalög og er á leiðinni á pósthúsið með dunk af smákökum ;) Bara frábær! Ég er ekki frá því að ég sé að tapa mér úr tilhlökkun.
Annars er að byrja nýtt norskt sjónvarpsprógramm, mamma søker kjæreste! Og líkt og nafnið segir til þá eru þetta þrjár einstæðar mæður sem eru að leita sér að kærustum!! Í auglýsingunni eru síðan mömmurnar sýndar með börnunum sínum og t.d. er ein að spyrja dóttur sína hvernig kærasta hún eigi að fá! Hvað finnst ykkur um það?
Norðmenn eru rosalegir með þessi prógrömm sín. Í fyrradag var einmitt að enda bachelor þáttur sem tileinkaður var bændum. Auglýst var eftir bændum á öllum aldri sem vildu finna sér konu en þeir þurftu að senda inn bréf með mynd sem var síðan birt á netinu. Konur sem höfðu áhuga á því að kynnast þeim frekar áttu svo að senda inn bréf, en þeir þurftu að fá ákveðinn fjölda bréfa til þess að fá að vera með í þættinum, og ekki allir fengu nógu mörg bréf. Hversu sorglegt er það?!
Annars ætla ég að setja inn myndir sem ég fékk frá Olgu sem hún tók þegar hún var hérna. Þetta er tekið í Frognerparken sem er aðal útivistarsvæði Oslóbúa og eitt helsta aðdráttarafl túrista sem koma til borgarinnar. Garðurinn er fullur af höggmyndum af alls konar fólki og í hvert skiptið sem ég fer þangað þá er ég alveg heilluð.


Mér finnst þetta alveg rosalega grípandi. Get bara ekki hætt að horfa á þetta og spá í þessu.

Olga að bregða á leik..
Þetta skrifaði
Eva
(4) Álit
föstudagur, nóvember 23, 2007
Ég tel, án efa, að Noregur er besta land fyrir Íslendinga að vera útlendingar í. Ég er 100% viss um að við höfðum ekki fengið íbúðina sem við erum í ef við höfðum ekki verið Íslendingar. Hjónin sem eiga íbúðina höfðu nefnilega sagt að þau vildu einungis einn leigjanda og þegar ég hringdi þá endurtók konan það. Eftir að ég var búin að sannfæra hana um að við værum svo róleg og frábær þá kom smá hik á hana og svo spurði hún aftur hvaðan við kæmum. Ég sagði það og þá spurði hún aftur: ,,Eistland, eller Ísland"? svarið var auðvitað ÍSSSSSSLAND. Þá kom allt annað hljóð í kellu þar sem hún sagði mér frá því að hún hafi farið í kóraferð til Íslands, ung að aldri, og hafi gjörsamlega orðið ástfangin af landi og þjóð. Hún bauð okkur að koma að skoða íbúðina og hitta manninn hennar. Maðurinn hennar er verkfræðingur og hefur unnið mikið með Símanum og RÚV og bar Íslendingum söguna góða og því var ekkert nema að skrifa undir samninginn.
Þegar við fluttum inn tóku þau okkur rúnt um hverfið, sýndu okkur hvar við gætum verslað ódýrt, hvar væri hægt að fara til læknis og hvar lestarstöðin er, og síðan við fluttum inn hafa þau hjálpað okkur afskaplega mikið. Hjónin reyndar lofuðu að við myndum fá internet um miðjan sept en hjólin byrjuðu ekki að snúast fyrr en langt var liðið Október, eftir að við sögðumst bara redda þessu sjálf. Þremur dögum seinna komu menn frá fyritæki hér út í bæ og settu upp internetið á tveimur tímum. Þvílík þjónusta.
Í fyrradag kom hins vegar bakslag í gæfu okkar. Við fengum reikning frá internetfyrirtækinu sem hljóðaði upp á tæpar 25 þúsund krónur íslenskar. Ekki bein kærkomin útgjöld þegar það er svo stutt í jólin og ekki svo auðvelt að redda heldur. Við vorum alveg miður okkar, enda var aldrei rætt að við myndum þurfa borga þetta... Við vorum heldur ekkert svo spennt að fara yfir og ræða þessi mál við þau, enda hafa þau hjálpað okkur mikið og hafa bara verið almennilegheitin uppmáluð. Einnig þar sem leigan er undir markaðsverði þá vildum við helst ekki fara stofna til leiðinda.
Í gær kom hins vegar karlinn yfir og sagði okkur að fyrirtækið hafi gert mistök og auðvitað ætli þau að borga reikninginn!! Hann baðst innilegar afsökunar á þessu og vonaði að við höfðum ekki haldið að þau ætluðu að svindla á okkur. YESS... við vorum glöð!!
Margir í vinnunni minni hafa farið til Íslands eða þekkja einhvern sem hefur ferðast þangað. Ég fæ að heyra reglulega sögur af Íslandi og Íslendingum og hvað á daga þeirra dreif í þeirra Íslandsförum. Til að mynda býr þarna einn maður frá Frakklandi sem fór í hestaferð um Ísland fyrir einhverjum tugi ára og hann segir sömu söguna í hvert einasta skipti sem ég hitti hann, sem er nokkrum sinnum á dag. Ansi oft myndast síðan rifrildi á milli fransmannsins og annarra Íslandsfara, hversu mikið þeir hafa upplifað land og þjóð og síðan vilja þeir að ég dæmi. Skemmtilegt. Hver getur nefnt fleiri staði, hver hefur ferðast mest, hver getur talið upp flest kvenmannsnöfnin og ég veit ekki hvað og hvað.
Yfirmenn mínir hafa einnig ferðast til Íslands og í hvert skipti sem ég tala við þá kemur þeirra för upp. Þau fóru í stóra reisu í sumar og fannst alveg tilvalin hugmynd að halda Íslandsdag í vinnunni þar sem ég ætti sýna myndirnar þeirra og segja frá. Dagurinn var haldinn í síðustu viku og það vildi svo skemmtilega til að þá var ákkurat Olga í heimsókn hjá okkur. Við stöllur suðum saman í einn fyrirlestur á nóinu og ég er nú ekki frá því að ég hafi fengið hálfgerða nostralgíu til HA áranna. Olga var síðan dregin af stað í vinnuna mína þar sem hún fékk að fara með ljóð, baka og dansa við íbúana. Á matseðlinum voru kleinur, soðiðbrauð og kjötsúpa. Ég var nú alveg viss um að ekkert meira íslenskt væri hægt að finna en svo kom í ljós að soðið brauð er einn af þjóðarréttum Indverja. Já, heimurinn er lítill. Dagurinn heppnaðist annars afskaplega vel, meira að segja svo vel að haldið var um stund að Olga væri bakarameistari bakarameistaranna :O)

Hinir útlendingarnir í vinnunni minni eru hinsvegar ekki svo ánægðir. Margir af þeim hafa unnið þarna í mörg ár og hafa aldrei fengið sérstakan dag sem er tileinkaður menningu og þjóð þeirra heimalands. Nánast enginn sýnir þeirra heimahögum áhuga en hrósa má þó þeim fyrir viðleitni.
Á meðan dvöl hennar Olgu stóð kom hinsvegar babb í bátinn. Græna þruman hálf gaf upp öndina, neitaði að fara lengra, og þurftum við að ýta elskunni restina heim, og það var nú ekki létt verk. Góða við þetta reyndar var það að við vöktum ekki allt hverfið með heimkomunni, en pústurörið datt undan bílnum snemma í september og því heyrðist ekki lítið í bílnum þegar við brunum á honum um götur borgarinnar.
Daginn eftir þurfti ég þar af leiðandi að senda Olgu á flugvöllinn með lest (sem reyndist reyndar vera vitlaus lest) og síðan þá höfum við ferðast með almenningssamgöngum. Nú tekur það mig rúma 4 klst að ferðast til og frá vinnu og um 2 klst fyrir Kára. Ég elska almenningssamgöngur! Það góða við þetta er þó að einn strætóbilstjórinn þekkir mikið til Íslands og því sitjum við á snakki megnið af leiðinni þar sem hann segir mér sögur af norðmönnum sem hafa ferðast eða fluttst til Íslands.
Við vildum þó ekki gefast upp á bílnum og því ákváðum við að hringja í manninn sem seldi okkur hann, en hann hafði nefnilega lofað að veita okkur hjálp ef bíllinn bilaði. Hann ferðaðist einmitt il Íslands fyrir um 20 árum og sagði að djammlífið í Reykjavík hafi verið rosalegt. Slagsmál á hverju horni og kexruglað fólk sem hann hafði miklar mætur á. Við fórum með bílinn til hans í dag þar sem Lithái sem vinnur fyrir karlinn kippti honum í lag á örskammri stund og lagaði pústurörið í leiðinni. Fyrir þetta áttum við að borga 300 kr norskar. Talandi um herlegheit. Bíllinn er eins og nýr og nágrannarnir búnir að taka okkur aftur í sátt.

Þannig í dag erum við úber glöð. Styttist ávallt í heimkomuna, erum endurnærð eftir heimsókn Olgu, fengum bílinn viðgerðan fyrir skit og ingenting, slepptum að þurfa vera með leiðindi í sambandi við internetið og þurfum ekki borga fúlgu fjár. Getur þetta verið betra?
Svo í þokkabót þá voru tvær ljósmyndir eftir Kára valdar á sýningu á Ljósmyndasafni Íslands. Sýningin byrjar 1.des og ég hvet alla til að kíkja á hana :)

Annars bið ég að heilsa og hlakka eeeeendalaust mikið til að koma heim og knúsa ykkur öll :)
Þetta skrifaði
Eva
(4) Álit
laugardagur, nóvember 03, 2007
Góðir dagar.
Allt gengur sinn vanagang hérna í Osló. Vinnum, borðum og sofum þess á milli sem við erum að taka á móti gestum og gangandi. Um helgina komu Sóley og kærasti hennar í heimsókn sem hefur verið alveg frábært. Fyrir ekki svo löngu kom einmitt pabbi Kára og svo eigum við von á Olgu eftir rúma viku. Brjálað að gera...
Erum alltaf að kynnast borginni betur og betur og skemmtilegt að segja frá því að aksturinn og aksturslagið hefur skánað til muna þó ég segji sjálf frá. Erum búin að gera ýmislegt og verið nokkuð dugleg að prufa nýja og framandi veitingastaði. Höfum borðað á mongólskum stað, kínverskum/japönskum þar sem ég komst að því að ég hef ekki ofnæmi fyrir sushi....fjandinn...! Svo höfum við borðað á karabískum stað, afrískum-eþíópískum og svo auðvitað á norskum. Ég vona bara innilega að eþíópískistaðurinn segi ekki til um við hverju maður megi búast við þegar farið verður til Afríku. Fékk einhverja lambakássu með brauði sem líkist víst bragðinu á súrum hval, fyrir þá sem vilja lýsingu. Hinir staðirnir fá hinsvegar topp einkunn.
Fjölbreytileiki er einmitt orðið til þess að lýsa því að búa í borg. Hér er allskonar fólk sem kemur allsstaðar að með mismunandi áhugamál og mismunandi bakgrunn. Menningin verður síðan hálfgerð samansuða þar sem fjölbreytileikinn fær að ráða og stýra ferðinni.
En þetta var útúrdúr.
Í dag fórum við á Munch safnið til þess að sjá Ópið, en því miður var upprunalega eintakið ekki til staðar í þetta sinn og þar af leiðandi sáum við bara copy af því. Verð að viðurkenna að ég hef ekki verið dugleg að heimsækja söfn á ferðum mínum, enda finnst mér yfirleitt leiðinlegt að fara á söfn. Óhætt er að segja að þessi safnarferð breytti ekki áliti mínu.
Hérna koma annars myndir frá borgarferð Freydísar og Heiðars..

Sætur....og hann reynir að telja mér í trú um að hann sé á lausu..

Freydís var nokkuð skotin í þessum enda fjallmyndarlegur ungur maður, held reyndar að byssan og búningurinn hafi heillað mest.

Sæt erum við, já sæt erum við.
Það nýjasta er svo í fréttum að Kári hefur fjárfest í stúdíóljósum. Nú er hann orðinn eins og pró!
Annars hef ég verið að skoða mastersnám á fullu upp á síðkastið. Hef fundið 3 prógrömm sem ég hef áhuga að taka, eitt í Toronto, Kanada og svo eru hin í London. Öll prógrömmin tengjast kynþætti, uppruna og flóttamönnum. En hvað maður mun gera, það er góð spurning. Allsstaðar er hægt að finna ný og áhugaverð tækifæri og möguleikarnir eru endalausir. Hvernig á maður að geta valið? Held að málið sé samt bara að stökkva á eitthvað, taka ákvörðun og halda við þá ákvörðun og síðan verður maður bara að treysta á símenntun...ekki satt?
Þetta skrifaði
Eva
(4) Álit
laugardagur, október 20, 2007
VIÐ ERUM AÐ KOMA HEIM!!
Vorum að panta miða heim um jólinn. Komum þann 17. des og förum út aftur 9.jan :) Þeir sem eru með pakka til okkar er vinsamlegast bent á hjálparstarf kirkjunnar (Djók, bíðum spennt eftir feitu pökkunum okkar ;)
Skelli mynd af Lille Gúbben sem tekin var í Noregsreisunni hans af myndasmiðnum sjálfum.

Flottur...?!?! ;)
Fyrir rétt verð værum við jafnvel til í að selja hann, en einungis á gott heimili þó!
Þetta skrifaði
Eva
(2) Álit